Um Ósýnilegu kenninguna

Við lifum undir áhrifum hugmyndafræði sem ræðst á alla þætti lífs okkar: menntun okkar og störf; heilbrigðisþjónustu og frítíma; samband okkar við annað fólk og andlega vellíðan; plánetuna sem við búum á – loftið sem við öndum að okkur. Hún hefur orðið svo útbreidd að fyrir flesta hefur hún ekkert nafn. Hún virðist óhjákvæmileg, eins og náttúrulögmál.

Ef við rekjum þessa hugmyndafræði aftur til rótanna uppgötvum við að hún er hvorki óhjákvæmileg né óbreytanleg. Hún var upphugsuð, breidd út og síðan hulin af fámennri valdastétt. Hún felur í sér öll stærstu vandamál sem við stöndum frammi fyrir í dag: hnattræna hlýnun, hnignandi lýðræði, vaxandi ójöfnuð, kynþáttafordóma, kynbundið ofbeldi, geðheilbrigðiskreppu og fleira.

Verkefni okkar er að varpa ljósi á þetta – og byggja nýtt kerfi sem er þess virði að berjast fyrir.

Hér má sjá kvikmynd sem gerð var eftir bókinni 2024.