Efni
„Við erum nú hvorki meira né minna en að fara í siglingu, segi ég. Hefurðu ekki frétt af því? Öll Reykjavík kemur auðvitað að kveðja okkur. Heimsviðburður.“
Gullfoss blæs til brottferðar í Reykjavík árið 1925. Hann fer klukkan átta um kvöldið til Seyðisfjarðar og þaðan til Hull og Kaupmannahafnar. Tvær ungar stúlkur eru meðal farþega og önnur þeirra segir söguna.
Í þessari hugljúfu ferðasögu bregður höfundur upp eftirminnilegri mynd af horfnum tíma þegar dönskuslettur voru í móð!