Skip to navigation Skip to content
Ormstunga
  • Hafa samband
  • Póstlisti
  • Um Ormstungu
  • Titlar
  • Höfundar
  • Rafbækur
  • Jón á Bægisá
  • Ósýnilega kenningin
  • Hafa samband
  • Póstlisti
  • Um Ormstungu
  • Titlar
  • Höfundar
  • Rafbækur
  • Jón á Bægisá
  • Ósýnilega kenningin
  • 0 kr. 0 bækur
Forsíða / Fréttabréf / Babúska komin út

Babúska komin út

Í dag kom út nýja bókin hennar Hallveigar Thorlacius, Babúska

Við fögnum útgáfunni í Gunnarshúsi mánudaginn 3. júlí kl. 17:30. Hallveig segir okkur frá tildrögum að þessari fyrstu skáldsögu sem hún skrifar fyrir fullorðna lesendur.

Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri og leiðsögumaður les valda kafla úr bókinni og Sigríður Thorlacius syngur sól í hjörtu viðstaddra.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Um söguna:

Ung stúlka verður fyrir bíl fyrir framan Þjóðleikhúsið og lætur lífið. Ökumaðurinn flýr af vettvangi. Eina vitnið að þessum atburði er Svetlana, rússneskur bókmenntafræðingur sem vinnur við þrif í opinberum byggingum. Hún hringir í neyðarnúmerið en hjólar burt.  Lögreglukonan Fanney kemur á vettvang. Við rannsókn málsins ákveður hún vegna ágreinings við yfirmann sinn að snúa sér að öðru máli sem komið er upp á bernskuslóðum hennar í Urriðavík. Kona hefur fundist myrt úti í fjárhúsi og fleiri morð fylgja í kjölfarið. Böndin berast að Birtu sem hengdi sig úti í fjósi fyrir hundrað árum. Flestir hafa séð vofunni bregða fyrir og öll sveitin stendur á öndinni.

Austur í Síberíu fréttir Lena að dótturdóttir hennar hafi fundist dáin í Reykjavík. Hún sér sig knúna til að fara til Íslands. Þegar hún fréttir af innrás Rússa í Úkraínu segist hún ekki eiga neitt land. Nágranni Svetlönu, Pétur, býður henni að búa hjá sér þangað til djöfulskapnum linni.

Hvað eiga dauðsföllin í Reykjavík sameiginlegt með morðunum í Urriðavík? Lena tekur þátt í að greiða úr flækjunni.

Leiðarkerfi færslu

Fyrri færsla Meydómur fær glimrandi dóm í Kiljunni
Næsta færsla: Maður í eigin bíómynd – Útgáfuhóf í Bíó Paradís
Eitt og annað fréttnæmt:
  • Nú fögnum við nýrri bók Unnar Gutt 18. október, 2026
  • Fróðlegt viðtal við Sigurð Skúlason 16. október, 2026
  • Huggulegheit í Þjóðleikhúskjallaranum 1. október, 2026
  • Nýfrjálshyggjan í nýju ljósi 26. júní, 2026
  • Skemmtilegt viðtal við Svein Einarsson 5. desember, 2025
  • Þessar tvær passa vel í jólapakkann 4. desember, 2025
  • Gaman í Gunnarshúsi 16. nóvember, 2025
  • Gat ekki lagt frá sér Lúx fyrr en í sögulok 12. nóvember, 2025

Bókaflokkar:
Leita á öllum síðum:
Af handahófi:
  • Lúx Lúx 3.490 kr.
  • Síðasti elskhuginn Síðasti elskhuginn 1.330 kr. – 3.490 kr.Price range: 1.330 kr. through 3.490 kr.
  • Í mynd Gyðjunnar Í mynd Gyðjunnar 1.890 kr. – 2.890 kr.Price range: 1.890 kr. through 2.890 kr.
  • Íslenski hesturinn Íslenski hesturinn 4.710 kr.
  • Thor Thor 2.490 kr.
  • Ljóðaþing Ljóðaþing 3.990 kr.
Aðsetur:
Ránargata 20
101 Reykjavík
sími 561 0055

Efnisorð:
bankageirinn Berglind bókamarkaður Davíð Wunderbar Einar Örn Gunnarsson Flækjurof frjálshyggja Futura Eterna glæpasögur goðafræði Gunnarshús Guðmundur Steinsson Gyðjan mikla Hallveig Thorlacius Hilduleikur hjónaband Hlín Agnarsdóttir hrunið Hákon Jens Behrens Jón á Bægisá kapítalismi Kiljan Lísa og veröld hennar Lúther Lúxemborg Maður í eigin bíómynd menningarsaga MR nasismi nasistar nýfrjálshyggja siðaskiptin skáldsaga skáldsögur spennusögur spjallbók Stefán Sturla sögukorn Unnur Guttormsdóttir Ágúst Guðmundsson Ásmundur Stefánsson Ég var nóttin Þýskaland útgáfuhóf þriðja heimsstyrjöldin
* * *
flexband harðspjöld innbundin kilja laus kápa mjúk spjöld myndabók rafbækur rafbók sveigjanleg spjöld sveigjanleg spjöld með innábroti
© Ormstunga 2026
Forsíða.
  • My Account
  • Leita
  • Cart 0