Fléttubönd – kilja

2.490 kr.

Spennusaga

Höfundur: Stefán Sturla

205 bls. kilja

Útgáfudagur: 22. október 2018

Rafbók (nóv. 2018)

Enginn sendingarkostnaður

Efni

Fléttubönd er önnur bókin í þríleiknum um Lísu lögreglukonu og aðstoðarfólk hennar, framhald af Fuglaskoðaranum (2017) en annars sjálfstæð frásögn.

Barnslík finnst á förnum vegi og óvæntir hlutir koma í ljós við rannsókn málsins og við sögu koma vægast sagt vafasamir starfshættir tiltekinnar bílaleigu. Samstarfsfólk Lísu leikur hér líka stórt hlutverk, einkum Kári, sonur Bangsa lögreglustjóra.

Auk þess að fylgjast með lausn morðgátunnar kynnast lesendur fortíð Kára og erfiðleikum hans við að fóta sig í lífinu. En allt gengur upp að lokum í óvæntum endi sögunnar nema hvað afdrif Kára skýrast ekki endanlega fyrr en í þriðja hlutanum.

Frekari upplýsingar

ISBN

978-9979-63-131-6

Hönnun og umbrot

Gísli Már Gíslason

Kápumynd

Marius G. Mihalache Michel

Prentun

CPI, Birkach, Þýskalandi