Efni
Þegar menn tóku að velta fyrir sér atburðum síðustu ára, aðdraganda hrunsins, aðgerðum eða aðgerðaleysi einstakra manna var eins og aðalatriðið gleymdist – að grafast fyrir um rætur þessa alls, frjálshyggjuna og kennisetningar hennar.
Þess vegna er orðið brýnt að víkka sjónarhornið og takast á við kennisetningarnar sjálfar. Til þess verður að fara aftur í tímann og athuga hvernig þessar kenningar urðu til, hvaða hlutverki þær gegndu og hvernig þær bárust áfram.
Í þessari bók kafar höfundur ofan í þessa sögu á nýstárlegan og mjög svo óhefðbundinn hátt og skoðar hvað kunni að leynast að baki vígorðunum.
Einar Már Jónsson er sagnfræðingur og doktor í miðaldafræðum. Hann kenndi mörg ár við Sorbonne-háskóla í París. Bók hans, Bréf til Maríu, vakti gífurlega athygli og umræður þegar hún kom út árið 2007.
♦ Örlagaborgin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
♦ Hér skrifar Eyja Margrét Brynjarsdóttir um Örlagaborgina.
„Ein mikilvægasta bók undanfarandi ára!“
Gauti Kristmannsson – RÚV
„… mikið verk, stútfullt af leiftrandi ritsnilld …“
Páll Baldvin Baldvinsson – Fréttatíminn
„Bókin er fádæma frumleg og skrifuð af mikilli íþrótt.“
Stefán Snævarr – pressan.is
„Þessi bók er algjört bíó.“
Guðmundur Andri Thorsson – Fréttablaðið
„… aðdáanleg framsetning á mjög mikilsverðu efni …“
Örn Ólafsson – smugan.is
„Bókin er skrifuð af lærdómi og list og hún er skemmtileg aflestrar …“
Atli Harðarson – Þjóðmál
„Hugmyndaauðgin í framsetningunni er mikil og þekkingin víðfeðm og djúp. Frábær bók.“
Þorgeir Tryggvasonson – facebook