Efni
„Bók þessi fjallar um uppvaxtarár mín og æsku, lífið og lífsbaráttuna í þorpinu, vegavinnusumur fjarri átthögum, um venslafólk mitt og aðra, sem voru með mér á einhvern hátt nákomnir.“
Þorpið er tímamótaverk og hátindur raunsæisskeiðsins í íslenskri ljóðagerð, sannkallað byltingarverk. Bókin kom fyrst út 1946 og var endurútgefin mörgum sinnum, síðast 1999. Þessar útgáfur eru nú allar uppseldar.
Árið 2014, kom út í Þýskalandi þessi tvímála útgáfa, prýdd úrvali af teikningum Kjartans Guðjónssonar.
Þýðendur: Wolfgang Schiffer, Sigrún Valbergsdóttir, Magnús Diðrik Baldursson, Wolf Kühnelt og Jón Thor Gíslason.