Efni
Ljóðræn frásögn þessarar sögu hverfist um líf og hugsanir þrjátíu og sex ára gamallar konu sem býr ein í agnarlítilli íbúð uppi í risi. Henni líður best einni með bókunum sínum og hún forðast karlmenn.
Hún les mikið og uppáhaldsbækurnar hennar eru rómantískar sögur frá nítjándu öld. Hún dvelur meira í heimi bókanna en hinum ytri veruleika. Þannig reynir hún að loka úti óreiðu umheimsins.
Skyndilega dregur til tíðinda, ástin birtist á sviðinu og færir líf hennar úr skorðum. – Líklega hefur íslensk kona aldrei áður lýst kvenlegum ástríðum betur.
Tímavillt er tíunda bók Berglindar.
„Tímavillt er dapurleg, falleg saga höfundar sem óttast ekki að snerta lesendur í hjartastað með einlægni sinni.“
– Hrund Ólafsdóttir, Mbl.