Efni
„Ég neita að beygja mig fyrir óréttlætinu og það er heilög skylda mín að segja sannleikann hvað sem það kostar.“
Hér segir frá ungum manni sem á í erfiðleikum með að sætta sig við vonsku veraldarinnar og finnur sig knúinn til að standa vörð um sannleikann og réttlætið. Hann á í stríði við valdastofnanir þjóðfélagsins og lendir meðal annars upp á kant við kirkjunnar menn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Óvenjulegt söguefni og tvísýn framvinda heldur lesandanum föngnum allt til síðustu blaðsíðu.