Efni
Sögurnar í þessari bók eru sagðar af skrásetjara eða annálsritara, svolítið gamaldags og tilgerðarlegum. Knúinn sannleiksþrá í anda upplýsingarinnar tekst hann á við ofvaxið verkefni: Að fanga langanir mannanna, birtingarform taumlausra girnda þeirra og aukaverkanir sem af þeim hljótast.
Hér er hárbeitt samfélagsrýni sett fram í þjóðsagna- og ævintýrastíl og mannlífið skoðað ýmist frá sjónarhóli fugls eða í nærmynd. Skrásetjara er staða mannkyns í alheimi hugleikin eins og fram kemur í spurningu hans í bókarlok: „Hvert er þá orðið okkar starf í sjötíu milljón sumur? Hvert leiðir allur sá æðibunugangur?“
Bókin er barmafull af kraumandi fyndinni alvöru.
Aukaverkanir er fimmta bók Halldóru.
Árið 2015 átti Eiríkur Guðmundsson skemmtileg viðtal við höfundinn í Ríkisútvarpinu. Hér má hlusta á það.