Þrátt fyrir sakleysislega kápu er rétt að vara fólk við því að lesa þessa bók. Það er ekki nóg með að Starkaður Starkaðsson fari offari í þráhyggju sinni heldur finnur hann þörf fyrir að bregða fyrir sig ruddalegu orðafari þegar hann ferðast djúpt niður í myrkur mannssálarinnar.
Dag nokkurn gengur hann of langt, móðgar of marga og í framhaldinu hrekst hann úr landi. Þráhyggja gagnvart tímanum tekur sér bólfestu í huga hans, einkum hvernig hægt sé að snúa aftur til betri tíma, þess tíma þegar menn voru menn og allir léku sitt rétta hlutverk í samfélaginu.
Hann sannfærist um að það sé hans hlutverk að laga þá skekkju sem nákvæm mæling tímans og tæknin hefur valdið í lífi mannfólksins. Hann hittir Dragicu, konu frá Júgóslavíu, og með þeim takast ástir.
Nú verður Starkaður að velja á milli lífs með Dragicu og hugmynda sinna um tímann og tilveruna.
„Átakanlega fyndin bók um nöturleg örlög karlmennskunnar.“
– Tyrfingur Tyrfingsson
Davíð Wunderbar er önnur skáldsaga Hákonar J. Behrens. Áður kom út Sauðfjárávarpið (2017).