Efni
Ritsafn Steinars Sigurjónssonar — 14. bók
Ritstjóri: Eiríkur Guðmundsson
Fremst í fyrsta hefti frumútgáfu þessarar bókar var prentaður
eftirfarandi formáli:
„Bókin hefur ekki fengist gefin út á
þessu landi en verður nú prentuð
og gefin út í áföngum hjá Vossforlagi í
Amsterdam, flutt til þessa lands og
fengin þeim sem kynnu að vilja lesa.
Ýmsir hollenskir listamenn munu
verða til að skreyta kápur þessarar
bókar en hún mun koma út í sjö
tveggja arka hlutum, og búin verður til
askja um heftin sjö. Henriette van
Egten hefur komið lagi á þetta fyrsta,
en síðan taka við ýmsir listamenn.
Það er marktækt fólk þarna í
Amsterdam og svo virðist sem
maður þurfi ekki að eiga við neina
sauði þar, vill höfundur meina.
Sáðmenn verður gefin út í 500
eintökum og mun koma út í sjö
tveggja arka heftum og kosta 300
krónur kvert hefti. Áskrifendur munu
sleppa með hundraðinu minna.“