Von frá Brooklyn

7.490 kr.

Höfundur: Hope Knútsson

163 bls. – harðspjöld

Útgáfudagur: 24. nóvember 2026

 

Efni

Baráttukonan Hope Knútsson fluttist búferlum frá Bandaríkjunum til Íslands árið 1974. Fimm árum áður hafði hún komist í kynni við land og þjóð þegar hún hafði 24 tíma viðkomu á Íslandi á leið sinni til Evrópu.

Þetta hafði afdrifaríkar afleiðingar. Í þessari bók segir frá hvernig Hope farnaðist hér á landi og hvaða áhrif hún hefur haft á íslenskt samfélag.

Hún sýndi djörfung og dug með því að vera brautryðjandi og fyrirmynd annarra innflytjenda, barðist ötullega fyrir framgangi iðjuþjálfunar, var potturinn og pannan við stofnun Siðmenntar og fékk alþjóðleg verðlaun fyrir framúrskarandi ævistarf í þágu húmanisma.

Fjölmargar myndir eru í bókinni.

 

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,55 kg
Hönnun og umbrot

Gísli Már Gíslason

Forsíðumynd

Einar Knútsson

Prentun

Prentmiðlun – svansvottuð framleiðsla í Lettlandi

ISBN

978-9979-63-168-2