Það kviknar í vestrinu

2.390 kr.

Ljóð

Höfundur: Unnur Guttormsdóttir

65 bls., kilja

Útgáfuár: 2011

 

Efni

Ljóðminningar frá björtum sumrum í sveitinni í Grundarfirði þegar krían kom með vorið og sendi telpuna í Reykjavík vestur á land þar sem frænka tók á móti henni, mjúk eins og nýstrokkað smjör.

Og eintómir strákar á heimilinu! Af blárósóttri undirskálinni sýgur langamma kaffi gegnum sykurmola. Þannig eru hinar hugþekku myndir sem höfundur bregður upp frá horfinni tíð.

„Fyrsta ljóðabók Unnar Guttormsdóttur, Það kviknar í vestrinu, dregur upp stuttar svipmyndir af sumardvöl borgarbarns í sveitinni um miðja síðustu öld. Ljóðin eru dæmi um það hvernig fortíðin getur lifnað við með réttu orðunum og orðið næstum raunverulegri en nútíðin.“
– Spássían, vetur 2011

Frekari upplýsingar

Þyngd 0,12 kg
ISBN

978-9979-63-108-8

Hönnun og umbrot

Gísli Már Gíslason

Ljósmyndir á kápu

Jakobína Ásmundsdóttir

Prentun

Leturprent