Efni
Í þessari bráðskemmtilegu bók rekur Haraldur örlagaþræði úr ævi þeirra sem hann hefur kynnst á fyrri tíð hér heima og meðal landa í Vesturheimi, spinnur þá inn í söguþætti af sjálfum sér og fléttar saman við fróðleik og spakvitrar hugleiðingar.
Hárfín gamansemi í bland við íslenskan menningararf frá árdögum goðsagna til vorra tíma laðar fram heildstæða og kímilega lífssýn manns sem beitir mælistiku uppeldis úr Kýrholti í Skagafirði á hvaðeina sem fyrir augu ber.
Uppistaðan er virðing fyrir andlegum gildum og þeim verðmætum sem djúpur mannskilningur, ómæld hlýja og fordómalaus væntumþykja í garð náungans geta ein skapað.
„Ég fullyrði í Vesturfaraþáttunum að Bréf til Brands sé með skemmtilegustu bókum á íslensku. Það er stór staðhæfing en sönn.
Haraldur skrifar bókina af feiknarlegri stílfimi, hann segir sögur af mörgum merkilegum persónum, hann greinir það sem hann hefur upplifað vestanhafs, alls staðar skín í gegn húmor, væntumþykja og húmanismi.“
Egill Helgason, RÚV
Útgáfur:
1999 – Innbundin – 253 bls. (uppseld)
2012 – rafbók