Efni
Árið er 1566 eftir hijrah – eða 2141 e.Kr. eins og nefnt var samkvæmt gamla tímatalinu. Á Íslandi, jaðarbyggð innan ríkjasambandsins EMIR, búa rúmlega fjörutíu þúsund íbúar, flestir þeirra múslimar sem hafast við í þægindum undir glerhvolfþökum í höfuðborginni Hellu, enda Reykjavík löngu komin í eyði eftir Landskjálftann mikla.
Til Helluborgar berast menningarverðinum Umari ibn-Yusef váleg tíðindi sem leiða til þess að hann aðstoðar lögreglumanninn Hasan Rahman við að upplýsa sakamál. Hér er kominn framandi og nýstárlegur heimur sem á sér samt þjóðlegar rætur.
Óvægin framtíðarsýn, þar sem sakamálasaga fléttast saman við orðræðu um trúmál, náttúruauðlindir og menningarverðmæti.