Hér má sjá Kiljuna frá því í gær.
Bókin seldist upp en örfá eintök komu frá bókabúðum eftir jól. Nú eru TVÖ EINTÖK eftir hjá okkur.
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
En við eigum ÓTAKMARKAÐ MAGN af rafbókarútgáfunni!
Bestu kveðjur.
Hér má sjá Kiljuna frá því í gær.
Bókin seldist upp en örfá eintök komu frá bókabúðum eftir jól. Nú eru TVÖ EINTÖK eftir hjá okkur.
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
En við eigum ÓTAKMARKAÐ MAGN af rafbókarútgáfunni!
Bestu kveðjur.
31. desember 2021


–
Á sviðsbrúninni – Hugleiðingar um leikhúspólitík eftir Svein Einarsson.
Í þessari bók rifjar höfundur upp starf sitt í leikhúsum, óperuhúsum, útvarpi og sjónvarpi undanfarna áratugi og veltir fyrir sér aðferðafræði og vinnubrögðum leikstjórans. Sjá líka hér.
Á morgun, fimmtudagskvöld, 14. okt. kl. 20:00, ætlar Sveinn að spjalla við Stefán Baldursson og Brynhildi Guðjónsdóttur um efni bókarinnar í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, Reykjavík.
Þetta verður ábyggilega hugguleg og áhugaverð kvöldstund. Við verðum líka með léttar veitingar. – Allir velkomnir!
Ormstunga gaf út tvær áhugaverðar bækur snemma í september sem vakið hafa athygli.

Með góðri kveðju
Kæru vinir,
mig langar að vekja athygli ykkar á því að hún Unnur Guttormsdóttir á stórafmæli í haust og okkur langar að gleðja hana á afmælisdaginn.
Kíkið á þetta

Sástu Kiljuna í vikunni?
Þar var margt skrafað. Meðal annars sögðu menn álit sitt á sögunni hennar Hlínar Agnarsdóttur, Hilduleik.

Það er útgáfuhóf á YouTube!
Hlín og Tómas Ævar Ólafsson ræða um nýju bókina hennar, skáldsöguna Hilduleik, sem er spennandi og ærslafull en samt harmræn frásögn af konu sem sættir sig ekki við að þurfa að breyta lífsháttum sínum bara af því að vera komin á „aflifunaraldur“. – Hlín komst einmitt á aflifunaraldur í dag. Við sendum henni bestu hamingjuóskir. – Hér má fræðast um bókina.

Nú er hún komin, falleg, mjúk og þægileg að handfjatla: Nýja bókin hennar Hlínar Agnarsdóttur. En söguþráðurinn er ekki alltaf jafn þýður. Hér má fræðast meira um þessa athyglisverðu skáldsögu.
Kæri viðtakandi,
fyrir margt löngu fékkstu stundum póst frá okkur. Síðan eru liðin nokkur ár.
Nú langar okkur að endurnýja kunningsskapinn og þætti vænt um að fá að senda þér einstaka sinnum fáeinar línur þegar okkur liggur eitthvað á hjarta. Ormstunga gefur út eina og eina bók eins og má sjá á vefsvæðinu okkar, www.ormstunga.is. Innan fárra daga kynnum við nýja íslenska skáldsögu og vonum að þér þyki gaman að frétta af því.
Með kveðju
frá Ormstungu