Stefán Aðalsteinsson

Stefán Aðalsteinsson fæddist á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal árið 1928. Þar ólst hann upp við fjárbúskap á víðlendri hálendisjörð. Þar voru hestar mikið notaðir, bæði við aðdrætti til heimilis og við bústörf.

Hann stundaði nám í búvísindum við Landbúnaðarháskólann að Ási í Noregi og lauk þaðan cand. agric.-prófi árið 1955. Hann starfaði við Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans, síðar Rannsóknastofnun landbúnaðarins, frá 1955–1991. Árin 1966–1968 vann hann við Háskólann í Edinborg, tölfræðideild, að ritgerð um erfðir á sauðalitum og hlaut doktorsnafnbót þaðan vorið 1969. Árin 1991–1996 var hann fyrsti framkvæmdastjóri norræns genabanka fyrir búfé, á vegum Norðurlandaráðs.

Stefán ritaði fjölda vísindagreina um litaerfðir í mörgum tegundum búfjár. Hann var meðal þekktustu sérfræðinga í heimi um litaerfðir sauðfjár og hrossa. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín. Stefán lést 2009.

Bók hans, Íslenski hesturinn – litir og erfðir, kom út hjá Ormstungu 2001.